
Algóritminn og bakslagið: Hver stjórnar hvað við hugsum?
ons 11 nov.
|Hotel Reykjavík Grand
Norðurlöndin hafa náð miklum árangri í að standa vörð um jafnrétti og réttindi hinsegin fólks, en hvernig samræmist það algóritmum sem hafa það eitt að markmiði að líma okkur sem lengst við skjáinn, jafnvel þótt það valdi skautun og bakslagi?


Time & Location
11 nov. 2026 13:00 – 17:00
Hotel Reykjavík Grand, Sigtún 28, 105 Reykjavík, Iceland
Guests
About the event
NORDREF, Transfeminiinit, Samtökin 78 og Ofbeldisvarnaskólinn kynna nýjar norrænar rannsóknarniðurstöður um algóritma á samfélagsmiðlum og bjóða gestum að svara spurningunni: Geta algóritmar hatað? Hvað ef bara einn sakleysislegur smellur mótar allt efni sem ber fyrir augu í framhaldinu? Á tímum gervigreindar, upplýsingaóreiðu og áróðurs, hver stjórnar því hvað við hugsum?
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fer með opnunarávarp. Aðrir viðmælendur eru yfirmaður stefnumótunar hjá TikTok, umboðsmaður jafnréttismála í Finnlandi, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, yfirmaður stefnumótunar hjá SASHA SafeShare, sérfræðingur frá Netvís og fleiri.
Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Dagskráin fer fram á ensku.
Tickets
Almennur aðgangur
Viðburðurinn fer fram í salnum Háteig
0,00 kr
Total
0,00 kr
